2014 Útvarpsleikhúsið RÚV Leikstjórn: Harpa Arnardóttir     

 

Eldri hjón, sem hafa ekki farið út úr húsi í þrjátíu ár, hafa ákveðið að opna útvarpsstöð.
Ólöglega útvarpsstöð. Þau gefa henni nafnið Rökrásin og er hún í loftinu núna. Opið er fyrir símann allan sólarhringinn og inn hringja sálir, pör, sem eiga það sameiginlegt að vera föst í samböndum, föst í hringrás árstíða, líkt og öldruðu hjónin sjálf sem reka stöðina. 

Persónur:

STEINUNN:    Ung kona heima hjá sér

DAÐI:              Ungur maður heima hjá sér

AUÐUR:          Kona vel yfir miðjum aldri á hótelherbergi

HELGI:            Maður vel yfir miðjum aldri á hótelherbergi

INGVELDUR: Rúmlega sjötug – Eigandi útvarpsstöðvar

ÞÓRHALLUR: Rúmlega sjötugur – Eigandi útvarpsstöðvar

RÖDD EITT:    Þórhallur

RÖDD TVÖ:    Ingveldur

Hljóðheimur: Gelt, ýlfur, slef, hlaupandi hundar. Hávært fuglagarg. Háir tónar úr óperum. Fugla og óperuhljóð sem koma saman. Berar fætur sem labba í drullu, grashljóð, stráhljóð. Vatnshljóð. Vatnsleki, hljóð úr rafmagnsrofa. Vindhljóð á toppi fjalls. Fótatak.

Kurr í hálsi, kökkur í hálsi, kverkaskítur. Ljóðaupplestur. Móðir mín, (ath: plötu hjá mömmu, endurtekið oft, setningin móðir mín). Ljóðalestur eins og ljóð voru lesin í gamla daga. Sum ljóðanna í verkinu lesin á klunnalegan máta. Tregasöngur úr fjallinu eða úr skóginum. Hljóð innan úr fjallinu.

Leikarar: Kristbjörg Kjeld, Erlingur Gíslason, Guðrún S. Gísladóttir, Kristján Franklín Magnús, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Vignir Rafn Valþórsson. Kristín Anna Valtýsdóttir samdi tónlist við verkið en hljóðvinnslu annaðist Einar Sigurðsson.

Tónheimur       : Kristín Anna (Kría píanó)        

Hljóðvinnsla     : Einar Sigurðsson

Leikstjóri          : Harpa Arnardóttir

Leave a comment