NÝLISTASAFNIÐ
OPNUNARGJÖRNINGAR FYRIR NÝJA STAÐSETNINGU Á NÝLÓ 2010
JÓNÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR HIP HOP KONA ELDRI
INGIBJÖRG MAGNADÓTTIR HIP HOP KONA YNGRI
Jónína og Ingibjörg sitja á stólum með bakið örlítið frá hvor annari.
Ingibjörg stendur upp og dansar við lagið
” You got the Love” eftir dansinn sest hún aftur á stólinn.
Jónína stendur upp af stólnum og staðnæmist fyrir framan Ingibjörgu
Jónína: Ég er fræg , hún setur andlit sitt í lófana. Ég er stjarna.
Jónína tekur upp hvíta þunna dulu/slæðu og setur yfir andlit sitt og segir:
Kysstu sjálfan þig.
Ingibjörg reisir sig við í stólnum og kyssir Jónínu í gegnum slæðuna. Svo gengur Jónína í burtu og Ingibjörg í humátt á eftir henni.
Á leiðinni út snýr Ingibjörg sér við og segir: Love the hand.
Þær eru klæddar í hettupeysur – með hetturnar á höfðinu, frekar fölar á að líta.
Venjulegir stólar og einn míkrafónn.